eibie bloggar

velkomin

24.05.2007 13:35:58 / eibie

mont mont...

Kuldakast í Íslandi....

 en á morgun verð ég í Bratislava, Slóvakíu....:lol:

LOOK AT THIS.... http://www.bbc.co.uk/weather/5day.shtml?world=4129

weeeeeeeeeeeeeeeeheeeeeeeeeeeeeeeeheeeeeeeeeeeeeee :D :D :D

Sendi ykkur sól í hjarta!

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.05.2007 10:32:00 / eibie

1. verðlaun í flokki lélegra bloggara..

Alveg er ég heiðursfélagi í FLB (Félagi lélegra bloggara..). Biðst afsökunar á þessu...

Mér tókst að ganga fram af mér með því að vera of aktíf í söng og vinnu undanfarið og er því nú orðin veik..um helgi.. vei... hef engann tíma í það..SVO mikið að gera áður en ég fer út UM NÆSTU HELGI....weeeeeheeeee... cant wait!!! á eftir að ganga frá SVO miklu í vinnunni áður en ég fer.. undirbúa og leggja fyrir vorpróf og fara yfir þau, plana vikuna sem ég verð í burtu og skrá allt inn í kerfið. En þetta reeeeddast... Þegar ég kem til baka í vinnuna á ég bara eftir að kenna 3 daga!! OG ganga frá í 3 daga... þannig að það styttist OFBOÐSLEGA í lokin á minni vinnu!!! ííííhaaaa..... :o

Við Víkz höfum verið í söngtímum í vetur...og á miðvikudaginn eigum við að láta í okkur heyra og syngja einsöng fyrir allt liðið sem var í söngtímum í vetur... stuð... Vona að ég verði komin með rödd í það... 8|

Á fimmtudaginn fer ég svo í klipp&stríp fyrir ferðina og syng svo á tónleikum í Langholtskirkju um kvöldið. Mæli með þeim fyrir þá sem fíla Bach! Hafið samband við mig og ég læt ykkur fá miða á kostnaðarverði :lol:

Sumsé nóg að gera þangað til við förum út. . .

Annars er ekki mikið búið að gerast í atvinnumálum... samt svoldið.. sem kemur allt í ljós vonandi fljótlega! :D

Til hamingju Leifur og Dagný með litla krúttið ykkar :lol:

Svo var systa mín búin að heimta afmæliskveðju... hér kemur ein SÍÐBÚIN...

TIL HAMM HAMM MEÐ STÓRAMMLIÐ ELSKU SYS!!!

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.04.2007 22:14:05 / eibie

bídduuuu....

OK wow... 96 heimsóknir hingað í dag???

Hvaða fólk er þetta eila? vinsamlegast kommentið....

8|


» 13 hafa sagt sína skoðun

24.04.2007 17:10:54 / eibie

uppsögn!


ER BÚIN AÐ SEGJA UPP!!! :lol:  :lol: :lol:


var pottþétt að gera það eina rétta því að þessu fylgdi mikill léttir :D

en nei ég er ekki komin með vinnu.. ef þið vitið um eitthvað sniðugt sem inniheldur engin börn né foreldra..megiði endilega láta mig vita! ;) tíhíhíh....


nei svona að öllu gamni slepptu..þá er nottla bara rugl hversu lítið maður fær útborgað fyrir þetta starf! Allt of mikil vinna og MIKIÐ álag fyrir fáránlega lítið kaup...

 

  


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.04.2007 23:14:47 / eibie

úff.. hræðilegt...

Jáh þetta hefur aldeilis verið viðburðarríkur dagur.. Hræðilegt áfall hjá pravdamönnum. Furðulegt...þegar ég var búin með kennsluna í dag leið mér eins og ég yrði að kíkja inn á mbl.is... var einhvern veginn viss um að það væri einhver stórfrétt í gangi. Æh það er erfitt að útskýra. Svo blasir þetta við með brunann. Ég hringdi í V sem var staddur fyrir utan með hinum eigendunum..allir í algjöru sjokki. Þakka fyrir að enginn slasaðist. Vés komst víst með naumindum út eftir að hafa verið að reyna að slökkva eld! Ég fór og hitti V, mágz og spildu á deco og við gengum framhjá brunanum... það var mjög óraunverulegt að sjá þetta svona með berum augum. sorglegt allt saman.

Svo núna í kvöld fór að fossa brennheitt vatn niður Laugaveginn... hvað er að gerast??


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.04.2007 22:15:36 / eibie

myspace-æði

Jám ég er fallin... fallin fyrir myspace.. búin að dunda mér við að búa til síðu og alles... Þið getið séð hana hér..

www.myspace.com/eibiebaby

Annars er páskafríið á enda.... :( Vinna á morgun... sniff sniff... Alveg til í lengra frí!!
but nooo....

Páskarnir hafa annars verið mjög góðir bara... mjög næs frí! hef aðallega verið að syngja...en líka skemmta mér og njóta þess að setja upp nýjar eldhúsgardínur og hillur í eldhúsið okkar með sæta mínum :D

hlakka miiiikið til á laugardaginn :lol:


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.04.2007 17:45:25 / eibie

GLEÐILEGA PÁSKA!!




» 0 hafa sagt sína skoðun

02.04.2007 12:54:56 / eibie

veikindi í páskafríi...

Ohhh hversu týbískt er þetta nú eila... komin með hálsbógu, kvef og slappleika í byrjun páskafrísins míns.. :( mjög fúlt!!

En ég náði að afreka ansi mikið um helgina:

  • fagnaði páskafríi með nokkrum úr vinnunni með öllara eftir vinnu á fös
  • gerði mágz sætaRI með því að mála hana og setja í hárið á henni fyrir ársó.
  • slakaði á
  • verslaði ammlisgjafir og fermingargjöf
  • gerði heitan brauðrétt fyrir ammli Gunnhildar
  • gerði fullt af kornflexkökum fyrir fermingu Rebekku
  • fór í 8 ára afmæli til Gunnhildar Gígju
  • fór í 2 ára afmæli til Lilju Bríetar
  • fór í 30s afmæli til Bjarka Gurrýjar
  • vaknaði kl. 7 á sunnudagsmorgninum
  • gerði fermingargreiðslu í Rebekku
  • greiddi Kolbrúnu
  • greiddi Stefaníu
  • málaði fermingarbarnið
  • málaði ömmu fermingarbarnsins
  • gerði mig sætaRI
  • plokkaði og litaði
  • fór í fermingarveislu
  • hitti Foldaskólaskvísurnar Signýju og Ásdísi..mjög gaman að hittast :lol:
  • horfði á TV
  • varð slöpp...

Jáhh... það má segja að þetta hafi verið erilsöm helgi hjá mér.. Vík greyið lasinn alla helgina og missti af herlegheitunum.. nema fermingunni!

Stefnan sett á að verða HRESS sem fyrst svo ég geti notið páskafrísins í botn!


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.03.2007 17:49:04 / eibie

æfingahelgi

Helgin var frábær. Var í Munaðarnesi með kórnum og var í bústað með skemmtilegasta fólkinu í kórnum.... við kölluðum okkar hús GLEÐIHÚSIÐ enda aðeins gleði-lið í því... Það samanstóð af Mér og Víkingi, Melkorku sys, Halldóru mágz, Biggubogg, Bryndísi og Bigga.

Þegar við komum á föstudagseftirmiðdegi uppeftir voru Halldóra og Biggabogg búnar að baka muffins og gera voða kósí..svo sætar! Svo var að sjálfsögðu æft og æft....en líka farið í pottinn og djúsað! ;) Árshátíð kórsins var svo á laugardagskvöldinu..MJÖG gaman.. fullt af snilldaratriðum. Tenórarnir slógu í gegn og líka Bryndís með sitt atriði! Ég var síhlægjandi allt kvöldið! Svo var hljónst að spila og ég að sjálfsögðu fékk að syngja 2 lög með þeim...heheh... Manaði Melkorku líka til að syngja og hún gerði það með stæl!

Mágz segir frá þessu með myndum hér!

Við erum hálf sloj í dag.. Get ekki BEÐIÐ eftir að vikan klárist því að þá er komið PÁSKAFRÍÍÍ...  :lol: :lol: :lol:

en jæja..best að fara að elda fyrir veika manninn fyrir kóræfingu.


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.03.2007 18:07:10 / eibie

uppáhaldshljónstin mín...

er þessi tónlistarmaður.. Mika! snilldarplata... hún kemur mér í mjög gott skap :lol:

 http://www.myspace.com/mikamyspace

Tékkið á þessu!

Annars bara fínt að frétta.. ekki mikið svosum. NÓG að gera í vinnunni... og í sósíal-lífinu líka... en ekki hvað?!

Vildi bara deila með ykkur þessari snilldar tónlist... annars skrifa ég meira seinna!

Og jú eitt enn...



TIL HAMINGJU MEРAFMÆLIÐ GUÐRÚN MÍN!!!

 

Ég mun kveikja í einum með þér í kvöld í tilefni dagsins!! ;)

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.03.2007 17:35:43 / eibie

kominn tími á blogg... ha..

Daginn daginn...

Nú er bara farið að birta þegar maður fer í vinnuna og núna þegar þetta er ritað mjög bjart úti..ennþá! Er ótrúlega sátt við það...

Margt drifið á daga mína síðan síðast get ég sagt...heil Danmerkurferð að baki sem var í alla staði SNILLD!!! ooog svo er starfið mitt innan vinnunnar að breytast heilmikið frá og með næsta fimmtudegi. Þá verð ég umsjónarkennari með 4. bekk fram í júní. Sumsé ári yngri en ég var með í fyrra. Þau eru voða dúllur og ég barasta hlakka til að breyta til í starfi..aftur!

En svo ég komi mér aftur inn á Danmerkurferðina þá vorum við að skoða skóla í Gentofte sem er í Köben og skoðuðum einnig vísindasafn og Kennaraháskólann í Malmö (Sverige). Öll kvöld voru að sjálfsögðu barir Köben VEL skoðaðir og drykkir prufaðir... Einnig voru verslanir Kaupmannahafnar vel athugaðar og þræddar þó einna helst verslun er nefnist H&M... ég hafði sko engan tíma til að skoða H&M í Malmö eins og restin af hópnum því ég vildi koma mér sem fyrst yfir til Köben því þangað var kominn sætasti strákur jarðarinnar á ægilega flott hótel...ég þurfti að sjálfsögðu að drífa mig að skipta um hótel og hitta sæta minn. Föstudagskvöldinu var svo eytt með sæta og fleirum úr vinnunni hans ásamt aðal-stuðboltunum úr vinnunni minni á SAMSBAR..sem er skemmtilegasti karaoke-bar Norðurlandanna...get ekki alveg sagt Evrópu eða heimi því þar koma inn aðrir skemmtilegir barir!

Ég var með hálfgerða snyrtistofu í S56 um helgina. Hingað komu fjölskyldumeðlimir í plokkun, litun og förðun...hehe... mamma mín kom í allan pakkann, systa í plokkun og litun og Stefanía frænkz og Guðrún vinkona hennar í förðun! Allt að gerast...
Helgin var annars róleg bara.. maður er enn að jafna sig eftir Köben... úff... Þannig að það var lítið djammað nema að ég kíkti í partý til Lou til að hitta útlendingana hennar frá Leeds. Þau voru hress og spræk og fóru svo í bæinn á meðan ég fór heim að soooofa... á lau-kvöldið buðum við Halldóru mágz og Vésteini mág og Hildi skámágz í mat. Mjög næs kvöld.

Vikan lítur vel út..höldum áfram ræktinni kl. 6 þrjá morgna í viku...ótrúlega öbblug..og svo kórarnir og söngtímar og vinahittingar og frænkuhittingur og ybs-hittingur ofl ofl ofl..

Gleðilega nýja vinnuviku gott fólk! ;)

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

20.02.2007 10:32:12 / eibie

LOOK AT THIS...

 

Varðandi bloggfærslu gærdagsins.... Veikindi vinnunnar rata í Moggann!

http://mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1254487

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.02.2007 19:36:07 / eibie

svo sannarlega flensa í gangi....

Ó mæ god... Eins og sjá má á heimasíðu vinnunnar minnar voru 18 starfsmenn veikir og 85 börn!!! Í lok dags fór talan upp í 90...þar sem margir fóru veikir heim.. Það var nú bara ljúft að kenna í dag...enda fámennir bekkir!

Og það styttist í Köbenferð...allir starfsmenn dauðhræddir umað lenda í flensunni fyrir eða í ferðinni.... :|  ..bráðsmitandi greinilega..
krossum fingur...

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.02.2007 13:48:26 / eibie

sonur minn??


Fékk þennan link frá Lou minni og hún sagði að sonur minn væri kominn á netið!!

Þið VERÐIÐ að sjá ÞETTA !! ....þetta bjargaði algjörlega deginum... :lol::lol::lol:


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.02.2007 21:27:56 / eibie

köben köben köben...

 

Garg... ég er svo spennt.... ekki á morgun..ekki hinn..ekki hinn....ekki hinn...ekki hinn heldur hinn....... verð ég komin til Danmerkur!!! :lol::lol::lol:

Var á fundi í gær um ferðina...held að þetta verði bara rosa skemmtilegt.. Skoðum 2 skóla á mann og förum í vísindasafn og svo yfir til Malmö að skoða kennaraháskólann þar. Hlakka til... það er nebbla víst ódýrara í H&M í Malmö heldur en á Strikinu.... ;) tíhíhíh....

Svo kemur nottla sæti minn á föstudeginum og ársó TM á laugardeginum! Það verður gaman að spóka sig um í Köben með honum... ;)


 


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10
BRATISLAVA OG V�?�?�?N
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1030 dögum
K�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢�?�?�?
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1123 dögum
Dagsetning
20. mars 2010
stutt eftir...
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1011 dögum
Klukkan