eibie bloggar

velkomin

24.04.2006 18:39:16 / eibie

mánudagsblogg

Ég held áfram að blogga á mánudögum..eftir helgarnar..

Helgin var góð hjá okkur hér í S56. Víkingur fékk græna fingur og var í garðinum allan laugardaginn.. veit ekki hvað kom yfir hann hehehe.. en garðurinn er allavega orðinn rosa flottur.. :) Hlakka til að liggja þar í sólbaði í sumarfríinu mínu. Er svo búin að lofa að mála grindverkið í sumar en skilyrðið er að ég fái að vera með hvítvínsglas allan tímann.. Sjálboðaliðar í hvítvínsdrykkju og grindverksmálningu í sumar? ;)

Á laugardagskvöldinu fórum við á Ölstofuna og fengum þar lungnakrabba svona í kaupbæti með bjórnum... viðbjóður hversu mikið maður angar eftir að hafa verið þarna inni!
Þar sátum við og drukkum öl með Sunnu skvísu og bróður hennar og Höska. Það var mjög gaman :D

Kíktum á Failure to launch í bíó og hún er bara svona lala.. bjóst við meiru en ágætis skemmtun svosum.. mæli frekar með henni á vídjóspólu!

HEIL vinnuvika þessa vikuna...hvílík skelfing... 8| frídagur í næstu viku...weeee...

vonandi áttuð þið góða helgi líka :haha:



» 1 hafa sagt sína skoðun

15.04.2006 21:38:46 / eibie

AMMÆLI

 

 

 

Jújú.. ég átti afmæli í gær.. og Víkingur gerði þessa GEÐVEIKU HNALLÞÓRU handa mér!!!

 

 

 


 

 

 

 

 

FLOTT??!

 

 

 

MIKIÐ gleðiefni var það að Gurrý ákvað að djamma memm í fyrsta sinn síðan hún átti og Melkorka sys ákvað að djamma líka en hún hefur ekki djammað leeeengi... ;) Þær skemmtu sér konunglega! :lol:

 

 

Gleðskapurinn um kvöldið gekk vonum framar og við enduðum nokkur í bænum og HÉR eru myndir sem sýna stuðið á mannskapnum :D

TAKK fyrir mig gott fólk!


» 9 hafa sagt sína skoðun

13.04.2006 17:43:19 / eibie

getting older..

skrýtið að maður sé alveg að verða 27 ÁRA...
mér finnst svo stutt síðan ég var 7 ára úti á Hábrekku að leika með nýja dúkkuvagninn minn...
Jafn stutt þangað til maður verður 47 ára... sjitt.. 8|


» 5 hafa sagt sína skoðun

13.04.2006 17:41:34 / eibie

Its not going to stop

It's not what you thought
when you first began it
You got, what you want
now you can hardly stand it though
well now you know

It's not going to stop
It's not going to stop
It's not going to stop
Til you wise up

You're sure, there's a cure
and you have finally found it
You think, one drink
will shrink you to your underground
and living down

It's not going to stop
It's not going to stop
It's not going to stop
Til you wise up

Prepare a list for what you need
before you sign away the deed

Cause it's not going to stop
It's not going to stop
It's not going to stop
Til you wise up

No, it's not going to stop
Til you wise up
No, it's not going to stop
So just give up

Aimee Mann


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.04.2006 19:11:49 / eibie

beuty week

AAAAAAHHHHH ég er svooooooooo ÁNÆGÐ í páskafríinu mínu... THIS IS LIFE!!! engin organdi börn..engir brjálaðir foreldrar..ekkert álag..engin slagsmál..engin geðveiki! 8| verí næs...

ég ætla eyða vikunni í afslappelsi og beutytreatment..
byrjaði daginn á ræktinni og svo fór ég í smáralind með systrum mínum.. keypti auðvitað mac-dót og fleira beuty-stuff..
fótsnyrting á morgun...

maður verður að njóta síðustu daganna sem maður er 26 ára... :D


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.04.2006 20:20:50 / eibie

sumt fólk er að biðja um að verða lamið....

GAAAA...... fékk þetta sms í gær frá Lovísu sem er stödd í KAÍRO núna.. :

"Góður mánudagur! Búin að liggja við hótelsundlaugina og sleikja sólina í 30+ stigum.. En þú?? ;)"

Ég leit út um gluggann og sá viðjóðslegt veður..snjókomurigning..vibba kalt og var stödd í vinnunni inni í stofu með brjálæðingunum mínum...
JÁHH..ég get ekki sagt að ég hafi hugsað hlýtt til lou minnar á þeirri stundu...
og hún var að synda í Níl í dag...

ég hefði EKKERT á móti því að vera þarna með henni!! :(


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.04.2006 22:19:11 / eibie

bón og bruni

góð helgi liðin... (ég viriðst aðallega blogga eftir helgar...hmmm.. akkuru ætli það sé?! ..ég nottla LIFI fyrir helgarnar..) eeeeeen nú eru aðeins 4 kennsludagar í páskafrí :lol::lol::lol: weeeheeee...

Ölver á föstudagskvöldið... Frumraun Víkings í karókí.. "Hello I'm Johnny Cash!" ;)
2 ammlisveislur á lau
1 ammlisveisla og ferming á sunnudag..
ÓVERDÓS af kökum og svoliss..

Við lentum í miður skemmtilegum hlut í gær.. Vorum óendanlega dugleg og tókum bílinn okkar alveg í gegn. Höfum aldrei þrifið hann jafn vel.. bónuðum hann meira að segja og vönduðum okkur við að pússa hann fram og til baka. Hann varð alveg óaðfinnanlegur og við vorum MJÖG stolt af okkur og bílnum..
NEMA HVAÐ...
Svo keyrum við af stað upp á SKAGA upp úr hálf fjögur til að fara í ferminguna... og þegar við keyrum úr Mosó sjáum við miiikinn reyk og lendum fljótlega föst í langri bílaröð...meeeeen..heyrum í útvarpinu um sinubrunann...og sjáum eftir að hafa setið föst í sirka korter að við ættum að prófa "hina leiðina" upp á skaga! Ég hafði ekki hugmynd um að það væri til önnur leið upp á skaga..en jú þá er hægt að fara upp á Mosfellsheiði og þaðan bak við Esjuna og inn í Hvalfjörð...
NEMA HVAÐ...
þar eru malarvegir....og fíni bíllinn okkar.............
WAAAAAAAA...... :cry:

en við komumst að lokum í fermingarveisluna.. hún var svosum fín.
snökt... :cry:


» 8 hafa sagt sína skoðun


BRATISLAVA OG V�?�?�?N
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1031 dögum
K�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢�?�?�?
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1124 dögum
Dagsetning
21. mars 2010
stutt eftir...
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1012 dögum
Klukkan