eibie bloggar

velkomin

30.06.2006 10:36:51 / eibie

helgin

brjálaða veisluhelgin var mjöööög góð.. flottar og skemmtilegar veislur :D

Vikan hefur verið góð líka..en engin almennileg sólböð sökum veðurs..

Þessi helgi verður vonandi góð..erum á leið á ættarmót á Arnarstapa í og við kíkjum líka á færeyska daga í Ólafsvík! Hvet alla til að kíkja á þá...því þeir klikka aldrei :lol:
Við erum búin að pakka hlýjum fötum en líka hlýrabolum og stuttbuxum svona just in case... svo er ég að fara í búðina og versla mat fyrir helgina og bjóóóóór... mér finnst e-ð endalaust langt síðan ég drakk bjór síðast....en var að fatta að það var bara um síðustu helgi... *ræsk* :$

eníhú.. þeir sem muna eftir klessa á skilti sögunni sem ég skrifaði hér í MARS.. þá verð ég að segja að það er mjööög dýrt að tala í sima og keyra bíl... því það fór að heyrast skrýtið hljóð í bílnum 2 mánuðum eftir að ég klessti á skiltið sem var fyrir mér.. og við settum bílinn í viðgerð og viðgerðin kostaði 100.000 !!!! GAAAA.... það er sumsé MJÖG dýrt að tala í síma og keyra... 8| eeeen sem betur fer var þetta tjón tryggt off kors svo að við þurfum ekki að borga alla summuna! hjúkk...

En jæja ætla að halda áfram að hafa mig til fyrir útileguna.. weeee.... :haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.06.2006 09:50:06 / eibie

gleymdi smá...

TIL HAMINGJU ÝR og HLÖÐVER með litla guttann sem ég hlakka svo til að sjá!

TIL HAMINGJU ÞORBSA og VIGNIR með Arnald Loga ..mússímúúúúúús...

TIL HAMINGJU allir sem eru að útskrifast á morgun!! :lol:


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.06.2006 09:44:41 / eibie

veisluhelgin hin mikla..

gúd morning... haldiði að maður sé ekki bara vaknaður..fyrir allar aldir!! sumsé fyrir níu í sumarfríi...það er nú nokkuð gott..ekki satt??

Ætla að reyna að vera dugleg í dag..fara í smáralind og versla mér skó og svona ;)

Vá ég er svo að fíla að vera í fríi..það er ekkert eðlilegt!! Svo eru bara 20 dagar í Spán!!! ííííhaaaa..... :lol:

Jæja en það er nóg að gera um helgina hjá okkur hér í S56.. Í kvöld koma öll börn systra minna í sleepover..það er skal ég ykkur segja MJÖG mikið sport að koma til Abbíar frænku og Víkings og fá að gista. Breiðum út flatsæng á gólfið og svo er glápt á TV og spilað og spjallað og nóg af gotteríi til :D Spurning hvort að við fáum yngstu tvo, Matthías og Patrek til að gista en það kemur í ljós.

Á morgun er veisludagurinn mikli hjá okkur... okkur er boðið í hvorki meira né minna en 5 veislur sama daginn!!! Allir að útskrifast og svo er skírn og 30s ammæli líka! Það verður allavega DJAMM hjá okkur... Havid systir víkings verðurð BS í líffræði á morgun og af því tilefni förum við út að borða á HOLTIÐ.. það verður örugglega ekki leiðinlegt! Svo verður þessi maður þrítugur og heldur upp á það sama kvöld. ;) Fyrr um daginn förum við í skírn til Tinnu Marínar og útskrift til pabba hennar.
Þær veislur sem við komumst ekki í eru hjá þessum sætu Guðrún og Guðrún Erna.

Vonandi verður áfram jafn mikil glampandi sól í dag eins og hefur verið síðustu tvo daga.. bara snilld að fá smá brúnku fyrir allar þessar veislur! ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.06.2006 17:42:41 / eibie

Eibí golfari

Já nú var maður að koma úr GOLFI.. Var að fara minn fyrsta hring núna áðan. Fórum á litla völlinn á Korpu með Siggu golfsjúku.. :lol: Mér gekk svona upp og ofan en aðalega var þetta bara GAMAN :D

» 0 hafa sagt sína skoðun

13.06.2006 19:36:45 / eibie

Sumarfríííííí

ég er líka komin í sumarfrííí...liggaliggalái.. :lol:

er búin að hafa það rosa gott í fríinu... bara að dóla mér í sundi, ræktinni, GOLFI og á kaffihúsum og heimsóknum með vinkonum mínum..endalaust næs...

Við Víkingur erum algjörlega að fíla golfnámskeiðið sem við erum á... mjög góður kennari og maður er kominn með smá bakteríu í sig... ;) Búin að kaupa mér 4 kylfur og læti... weee..gaman gaman.. ég hefði aldrei trúað því að þetta væri svona gaman!

Birta búin að fá nýtt og gott heimili, uppi í Grafarholti hjá vinnufélaga Víkings, og meira að segja komin með nýtt nafn....En það er löng saga af því hvers vegna hún er ekki lengur á Akranesi...Aðal málið er að henni líður vel á nýja heimilinu. Þannig að ég er búin að sætta mig við þetta þó að þetta sé endalaust sorglegt að geta ekki haft hana sjálf... :(

Svo er HM í algleymingi á mínu heimili.. ég held með nokkrum liðum enn sem komið er..þá má nefna helst Brasilíu (búin að kaupa Brasilíubol og alles), Ítalíu, Frakklandi og Englandi. En mín gleði við að horfa á leikina er að sjá alla þessa myndarlegu menn og fótleggina þeirra... grrrr... Held að ég sé ekki beint uppáhalds áhorfsfélagi Víkings á HM... Dettur útúr mér stöku sinnum: ,,Djöööö er þessi fallegur maður..!!" eða ,,sjáðu þessar lappir" ,,...já lyftu nú upp bolnum drengur" hihihi... en auðvitað er Víkingur fallegasti og myndarlegasti maður á þessari jörð... :D

Mánuður í Calpe!!!! ííííhaaaaaaaaa....

En með hverjum haldið þið á HM? og hver er myndarlegasti leikmaðurinn?? ;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

06.06.2006 18:38:09 / eibie

mikil sorg í s56

Nú er Birtan farin úr lífi okkar...

Hún er flutt á gott heimili á Akranesi.

Það er rosalega tómlegt hér..

Við söknum hennar óendanlega!

:cry:


» 6 hafa sagt sína skoðun

03.06.2006 00:21:21 / eibie

ups and downs...smiles and frownes..

æjj...lífið er e-ð svo ósanngjarnt við mig núna þessa dagana.. ég er ekki sátt! :whut:

Var hjá ofnæmislækni í morgun og hann greindi mig (eins og ég svosum bjóst við) með heiftarlegt hundaofnæmi..sem skýrir nefrennslið, augnkláðann, hóstann, andnauðina, útbrotin og kláðann. . . . :( Þetta þýðir að við verðum að láta Birtu fara frá okkur..og reyna að finna nýtt heimili fyrir hana! Þetta er ALLT OF sorglegt að ég er bara stanslaust með tárin í augunum... Þetta er svo mikið svindl því ég hef aldrei verið með dýraofnæmi eða neitt þannig og svo akkúrat NÚNA þegar ég fæ mér lítinn, yndislega sætan og frábæran voffa..þarf ég endilega að vera með ofnæmi.
Allir búnir að vera að segja mér að það sé betra að láta hana strax heldur en að bíða með það og tengjast henni ennþá meira...en málið er að ég er nú þegar orðin tengd henni og farin að venjast því að vakna upp á nóttunni við væl um að vilja fara að pissa og láta mjúka Birtu kjassast í mér...

úff... en eeeendilega ef þið vitið um einhvern sem vill eignast ÆÐISLEGA, 11 vikna labrador tík... látið mig vita.

Ekki að þetta sé það eina sem er ömurlegt..heldur er líka familíukræsis sem ég ætla ekki að fara nánar út í hér en bara viðbjóðslega leiðinlegt allt saman. . . :$

eeeen maður verður víst samt sem áður að reyna að líta á björtu hliðarnar í lífinu...
Síðasti kennsludagur í dag.. good-bye crazy kids.. og bara VIKA í SUMARFRÍÍÍÍið mitt :D jibbí.
CALPE eftir rúmlega mánuð 8)
Var í upptökum með hinni frægu Keren Ann í dag með gurr, mágz og raggz og það var bara GEÐVEIKT gaman og ég fílaði mig mjög mikið eins og poppstjörnu..fengum monní fyrir að syngja inn á fullt af ÆÐISLEGUM lögum og ég hefði verið ánægð að fá 100kall því þetta var svo gjörsamlega ánægjunnar virði..þetta gjörsamlega bjargaði deginum mínum að komast í að syngja þetta!!! :lol:

Lady&Bird verða svo dj-ar á Barnum annað kvöld. Mætum að sjálfsögðu þangað og dönsum af okkur rassgatið... ;)



» 6 hafa sagt sína skoðun


BRATISLAVA OG V�?�?�?N
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1031 dögum
K�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢�?�?�?
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1124 dögum
Dagsetning
21. mars 2010
stutt eftir...
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1012 dögum
Klukkan